IBH ehf hefur flutt starfsemi sína yfir á Vagnhöfða 21.

Vegna mikillar aukningar í framleiðslu tromlumótora og færibandaefnis var gamla húsnæðið okkar á Bíldshöfðanum farið að þrengja að okkur og því ákveðið að flytja starfsemina í stærra húsnæði eð betri aðkomu.


IHB- heildverslun og þjónustufyrirtæki sérhæfir sig í þjónustu við hátæknifyrirtæki og vélaframleiðendur fyrir matvælaiðnað.  IBH starfar náið með vélaframleiðendum.  Einnig sinnir fyrirtækið varahlutaþjónustu við útgerð, frystihús og aðrar matvælavinnslur sem og annan iðnað um land allt. 

IBH- iðnaðarfyrirtæki  er leiðandi fyrirtæki í sölu á tromlumótorum, færibandaefni ofl. íhlutum og tækjum í sjávar og matvælaiðnaði.  Fljótlega varð ljóst að erfitt var að veita viðunandi þjónustu með tromlumótora svo vel ætti að vera með því að flytja þá inn samsetta.  Ástæðan er sú að þarfir viðskiptavinanna eru mjög ólíkar.